Nú sit ég inn á herberginu mínu, nýkomin úr sturtu og get eiginlega ekki hreyft mig..... eftir aðeins 48 klukkustundir hérna er ég skaðbrunninn. Nei ég er auðvitað að ýkja eins og venjulega, ég er bara smá brunninn en nóg samt til að mig langar ekkert rosalega út í sólina alveg strax. Sólin er hæst á lofti hérna milli 12:00 - 15:00 og núna er kl. hérna 12:30.
Ákváðum í gær að skella okkur bara í bæjarrölt sem boðið er upp á hjá Plús-ferðum, það var gaman, við byrjuðum reyndar á því að fara með rútu upp í hlíðar Akrotirihöfða en þaðan sést vel yfir Chania, borgina sem við erum í. Þar er að finna gröf krítversku frelsishetjunnar Venezelos en það sem mér fannst skemmtilegast að skoða þar var rosalega falleg pínulítil kirkja. Svo fórum við niður í miðbæinn, gengum um þröng stræti borgarinnar, ótrúlega magnað, fórum í gegnum markaðinn og enduðum svo á veitingarstaðinum Zepos. Þar sátum við á borði með skemmtilegri fjölskyldu frá Akranesi og borðuðum góðan grískan kvöldmat. Maturinn hérna er mjög góður, alla veganna það sem við erum búin að smakka hingað til. Þar með lauk bæjarrölti Plús-ferða.
Eftir matinn ákváðum við að rölta um feneysku höfnina, sem er ótrúlega falleg og sérstaklega að kvöldi til þegar ljósin frá veitingarstöðunum og vitanum fá að njóta sín. Frá höfninni lág leiðin aftur upp á markaðinn, þar sem er ótrúlega mikið líf á kvöldin. Eftir að hafa tekið leigubíl heim, settumst við út á verönd hérna fyrir utan íbúðina okkar og spiluðum, ótrúlega kósý bara.
Strákarnir hérna eru alveg brjálaðir í Sunnu og Telmu, það eru iðnaðarmenn að vinna hérna við hótelið og þeir sjá niður í garðinn hjá okkur, þar sem við vorum í sundlauginni í gær og þeir voru alltaf að blýstra á þær og sérsaklega einn var eiginlega bara hættur að vinna, hann var svo mikið að horfa á þær og þegar við erum úti að labba er endalaust flautað á eftir okkur/þeim, sem er mjög fyndið.
En....já.... ætla að fara að gera eitthvað skemmtilegt, læt heyra í mér síðar, er að setja inn nokkrar mydir mamma
kveðja Silja Rut
p.s. Dagbjört og Hrannar við erum stanslaust að hugsa til ykkar, bíðum spennt efir fréttum
13. júní 2008 klukkan 10:05
Silja Rut Thorlacius Engin athugasemd
Mér til mikillar undrunar eru enn þónokkrir sem koma hingað inn á síðuna mína öðru hverju...... ( í 99,5% tilvika eru það nú sennilega hún mamma mín blessunin)
svo ég er að spá í að pára aftur hérna inn, einhverja vitleysu stöku sinnum, svona þegar andinn kemur yfir.
en ekki í dag, andinn er allur í lokaverkefnum og skúringarfötum þessa daganna og eitthvað á næstunni
en desember verður góður mánuður, ég finn það á mér
24. nóvember 2007 klukkan 15:29
Silja Rut Thorlacius 8 athugasemdir
að ef að þið límið saman, með límbandi, vísifingur og þumalfingur á hægri hendi þá verður ótrúlega erfitt að gera marga hluti, t.d. eins og að skrifa nafnið sitt.......
nema auðvitað þið séuð örfhent.
Mér var bent á þessa staðreynd af litlum dreng í öðrum bekk í gær, sem náði að sannfæra mig á augabragði með viðeigandi látbraði og lýgilegri sannfærinu og áhuga.
Ég lofaði honum að sannreyna þetta við hið fyrsta tækifæri.
25. ágúst 2007 klukkan 13:05
Silja Rut Thorlacius 6 athugasemdir
Komst ekki hjá þvíað kíkja í nýjasta Smáralindarbæklinginn sem hafði komið inn um lúguna hjá mér í morgun oglág á forstofugólfinu við hliðina á fréttablaðinu sem ég ætlaði að kíkja í með morgunkaffinu.
Jæja....., hugsaði ég, þá er haust-vetur uppskriftirnar loksins komnar.
Ég fletti hratt í gegnum blaðið þar til ég rak augun í einn af tískuþáttum blaðsins þar sem manni er ráðlagt að taka stórstjörnuna Lindsay Lohan sér til fyrirmyndar.
Það kom upp í huga mér hvort það væri nú virkilega nauðsynlegt að draga upp glansmyndir af kókaínfíklum og síafbrotamönnum og hvetja ungar stúlkur til að líta út og vera eins og þeir.
„....því stærri sem taskan er, því minni virðist líkaminn.“
Ég man ekki betur en að fröken Lohan hafiverið ein af þeim Hollywoodstjörnum sem voru hvað mest í sviðsljósinu hérna um árið fyrir að grennast óhugnalega mikið á stuttum tíma.
Ekki síst þess vegna fékk ég óbragð í munninn þegar ég fletti yfir á næstu opnu og við mér blasti fyrirsögnin „Hamingjan felst ekki í buxnastærð.“ Í greininni er rætt við Ölmu Geirdal framkvæmdarstjóra Forma, samtaka átröskunarsjúklinga og segir hún meðal annars í henni að samtökin vilji helst fá að vinna með börn alveg frá fjögurra eða fimm ára aldri til að geta strax kennt þeim ákveðin gildi og hvað það er sem skiptir máli í lífinu.
HRÆSNI!!?? Ég veit það ekki, alla veganna svolítið misvísandi skilaboð í gangi hérna.
TIL HVERS segi ég nú bara, til hvers að vera að reyna að ná til barnanna og reyna að sporna við útlitsdýrkun þegar það er tapað stríð, tapað stríð við fjölmiðlana sem í öllum sínun fjölbreyttu formum text að heilaþvo okkur öll, löngu áður en við gerum okkur grein fyrir því, ef við á annað borð gerum það einhverntímann.
Þetta er Ísland í dag, sex ára krakkar að passa línurnar.
Ég aftur á móti fæ mér bara stærri tösku.
......veit einhver hvar ég setti sexmannafjölskyldu-ferðatöskuna mína?
17. ágúst 2007 klukkan 11:40
Silja Rut Thorlacius 7 athugasemdir
Snitsel, gúllast, steikt ýsa, tika masala kjúlkingaréttur, pönnusteiktur þorskur í raspi, hakkabuff með eggi, langloka með grænmeti, túnfisk, rauðlauk og fetaosti, gordon blue, samloka með skinku, mínútusteik, osti og beikoni, pasta polo, steiktur steinbýtur,londonlamb, saltfiskur með spænku yfirbragði, hrísgjón eða kartöflur, (zimnaky) , hamborgari og franskar, kjúlkingahálfmánar, lax, kálfasteik, grísahnakkar, lambaframpartar, folaldakjöt, grískt salat, wokfiskur......................
Fyrir mér eru til tvær gerðir karlmanna, þeir sem ganga frá diskunum sínum og þeir sem gera það ekki.
Bara tveir dagar eftir.
11. ágúst 2007 klukkan 10:32
Silja Rut Thorlacius 3 athugasemdir
ég hef bara ekkert verið að blogga undanfarið, sumarið komið og svona annars sá ég þessa flottu auglýsingu á skjá 1 um daginn, varð bara að henda henni inn.
spennandi helgi framundan, hver veit nema ég hendi inn færslu á sunnudaginn :D
p.s. maður segir Í Búðardal
22. júní 2007 klukkan 16:41
Silja Rut Thorlacius 8 athugasemdir
Þá eru veggir gangsins hjá mér orðnir hvítir, já og inn á baði líka.
Það var bara svolítið skemmtilegt að mála baðherbergið, en eins og þeir sem hafa kíkt í heimsókn vita, er það frekar lítið.
Það leiðir að sjálfssögðu að því að þar inni er lítið pláss til að athafna sig og þegar kom að því að mála fór ég að hafa áhyggjur af fötunum mínum, því ég þóttist vita að ekki liði að löngu en ég endaði með hvítt rassgat.
Þar sem ég átti engin föt sem ég var til í að ofra fyrir hvítt baðherbergi og lokað var í helstu byggingarvöruverslunum höfuðborgarsvæðisins sem selja málingargalla, fékk ég þá bráðsnöllu hugmynd (að mínu mati) að mála bara á nærfötunum.
Þessi bráðsnjalla hugmynd átti reyndar eftir að breytast í eitt besta helgarfrí sem ég hef átt í langan tíma.
Þvi þar sem ljósgjafinn inn á litla baðherberginu mínu er ekki að bestu gerð, varð ég að nota sjóðheitan ljóskastara til að sjá hvað ég var að gera.
Baðherbergið breyttist á svipstundu í hvíta baðströnd.
Léttklædd í sólinni með ískalt íste í annarri og málingarrúlluna í hinni naut ég dagsins í botn.
(Ég er að spá í að mála eina umferð enn inn á baði, bara svona mér til skemmtunar)
29. maí 2007 klukkan 20:27
Silja Rut Thorlacius 4 athugasemdir
Það er kannski ekki hægt að segja mikið um hann Laxa. Ég get þó sagt ykkur að við getum eiginlega ekki lagt lengur fyrir framan húsið okkar, því við viljum ekki valda umhverfisspjöllum eða sjónmengun.
Vinir okkar vilja ekki lengur hitta okkur og allra síst fá okkur í heimsókn til sín, þar sem nágrannar þeirra kvörtuðu síðast þegar við kíktum við.
Og í gærkvöldi þegar við skruppum niður í bæ og stoppuðum á rauðum ljósum litu krakkarnir í næsta bíl á Mr. Laxa svo á okkur og hlóu.
Það er stundum gott að maður hefur húmor fyrir sjálfum sér.
Volkswagen Polo eru bara flottustu bílar en þegar þeir eru svona á litinn.....
......þið mynduð líka hlægja
14. maí 2007 klukkan 18:32
Silja Rut Thorlacius 5 athugasemdir